Fluguveiði
Klukkan
07.07.2008 20:23:03 / flugan

Nr,2

Ok, ok, það gekk ekki beint betur í dag en í gær en ég dugði aðeins lengur. Þessar horfnu flugur mínar hurfu útaf "Svipueffect" sem myndast þesgar maður er of bráður. Þá einfaldlega flýgur flugan af. En mér gekk aðeins betur í dag, flugan flaug ekki af eins og ekkert hafði gerst in NO TIME. En ég missti samt 3 hugrakkar flugur en fiskanir misstu ekki neinn af sínum stofni. Þannig að það gekk ekkert það vel. En vonandi fæ ég fisk næst. Þótt það sé 0,01 tomma.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 23:30:29 / flugan

Fyrsta ferðin.

Jæja...ég lét verða að því og opnaði síðu til að láta fólk vita hvernig gangi í veiðinni hjá mér.

Fyrsta ferðinn var uppá Nikurvatn þar sem allt fór til spillis. Ég fór rétt fyrir utan bílinn og byrjaði að kasta. Eftir smá tíma týndist  flugan en ég fann hana eftir smá tíma. Skipti um stað og hélt áfram Flugan var aftur farinn af og ég skimaði eftir henni en fann hana ekki. Setti aðra á (púpu) og hélt áfram. eftir fyrsta kastið týndist hún (veit ekki hvernig) þannig og það kom einhver húger hnútur sem ég gat ekki leyst. Hélt heim að bílnum en var ekki með neitt á mér til að skera tauminn þannig...ég hélt heim á leið. Ekki mikill afli sem kom í fyrsta skiptið eeeen.....svona er lífið.

Sjáumst uns æsta skpti.




» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 2678
Gamalt blogg